Vinavika verður 28. október-1. nóvember. Verkefnið útivinir verður í gangi 7.-11. október Útivinir er verkefni þar sem nokkrir 8 og 9 ára nemendur standa fyrir útileikjum á skólalóðinni í frímínútum fyrir yngri nemendur undir handleiðslu kennara. Foreldradagur er þriðjudaginn 15. október. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennarar munu hafa samband við foreldra og bjóða v
Kæru foreldrar/forráðamenn, Eins og komið hefur fram á foreldrafundunum og í póstum frá skólanum eru nestismálin mikilvæg í skóladeginum. Með því að smella hér má sjá viðmið sem eru reglur skólans og við treystum að þið fylgið. Góðar stundir // athugið að smella verður á fréttina til þess að sjá hlekkinn
Kæru foreldrar/forráðamenn 5 ára barna, Við minnum á foreldrafundinn á morgun kl. 17:30 á sal skólans. Ekki er ætlast til að börnin komi með á fundinn. Við hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.