Kæru foreldrar/forráðamenn og vinir Ísaksskóla Heimildarmyndin Ísaksskóli í 90 ár er komin inn á Vodafone leiguna. Hrefna Hallgrímsdóttir og Bragi Þór Hinriksson unnu að gerð myndarinnar í tæp tvö ár og hefur þeim tekist að fanga brot af sögu skólans frá upphafi til dagsins í dag. Myndin er í senn fræðandi og skemmtileg og lýsir afskaplega vel þeirri hugsjón sem hefur verið leiðarljós skólans allt
Heil og sæl kæru vinir, Foreldrafélag Ísaksskóla minnir á páskabingó fyrir nemendur skólans og aðstandendur þeirra í næstu viku. Páskabingóið er fjáröflun fyrir gjöf Foreldrafélagsins til Ísaksskóla – að þessu sinni erum við að safna fyrir mjúkri malbikaðri leikmottu á skólalóðina. Við byrjuðum að safna fyrir leikmottunni í fyrra og klárum það í ár. Þið getið aðstoðað okkur að ná þessu góða
Á þriðjudaginn var haldið skákmótið Vesturbæjarbiskupinn 2018. Alls tóku 5 krakkar úr Ísaksskóla þátt í mótinu. Fjórir krakkar í flokki 1-3 bekkjar, Adrían Ólafur Jónsson (4. sæti með 4/6) , Bjarki Hrafn Garðarson (5. sæti með 3,5/6), Kristján Möller (15 sæti með 2/6) og Filippus Nói Árnason (20 sæti með 1/6). Í flokki 4-7 bekkjar keppti Markús Hrafn Idmont Skúlason (12 sæti með 1/6).
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.