Kæru foreldrar/forráðamenn Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út viðvörun vegna slæmrar veðurspár fyrir morgundaginn, 21. febrúar. Höfuðborgarsvæðið: Suðaustan illviðri (Appelsínugult ástand) 21 feb. kl. 07:00 – 11:00 Gengur í suðaustan 20-28 m/s, hvassast í efri byggðum og á Kjalarnesi. Snjókoma í fyrstu, en síðan slydda og rigning. Gæti orðið blint og foktjón er líklegt. Líkur e
Vísindastund verður miðvikudaginn 7. febrúar. Þá mun hver árgangur spreyta sig á tilraunum. Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 12., þriðjudaginn 13. og miðvikudaginn 14. febrúar. Þeir eru að jafnaði hefðbundnir skóladagar hjá okkur. Þó viljum við benda á að á: … bolludag mega börnin koma með rjómabollur í skólann í aukanesti. … sprengidag – saltkjöt og baunir, t
Kæru foreldrar/forráðamenn. Við verðum á þjóðlegum nótum á morgun, föstudag. Tilefnið er Þorrinn. Að lokinni söngstund munu bekkirnir koma einn í einu með sínum kennara fram á sal þar sem þeir fá að bragða á hefðbundnum þorramat; hrútspungum, sviðasultu, hákarli og harðfiski. Nemendur mega koma í lopapeysum í skólann. Kær kveðja. Starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.