Verkalýðsdagurinn er þriðjudaginn 1. maí og er almennur frídagur Uppstigningadagur er fimmtudaginn 10. maí og er almennur frídagur. Annar í hvítasunnu er mánudaginn 21. maí og er almennur frídagur. Leikjadagur verður föstudaginn 25. maí. Farið verður á Miklatún og farið í leiki sem Matti og Jói íþróttakennarar skipuleggja. Gönguferð – Með dags fyrirvara í síðustu skólaviku er farið í göngufe
Kæru vinir Við minnum á kröfur sem stofnaðar hafa verið í banka fyrir Foreldrafélag Ísaksskóla. Ein krafa er stofnuð á fjölskyldu, óháð hversu mörg börn eru í skólanum. Félagsgjöldum er haldið í lágmarki, eða einungis 3500 kr. Ógreiddar eru 92 kröfur af 233, eða um 40%. Það er einlæg ósk okkar að sem flestir foreldrar sjái sér fært um að greiða félagsgjöld – það er grunnur að góðu starfi For
Fyrsti skóladagur eftir páska er á morgun, þriðjudagurinn 3. apríl og hefst venju samkvæmt kl. 8:30. Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar verður haldinn þriðjudaginn 10. apríl kl. 17:30 á sal skólans. Allir foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að mæta. Sumardagurinn fyrsti er fimmtudaginn 19. apríl og er almennur frídagur. Með góðum kveðjum, Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.