Heil og sæl kæru vinir, Nú er komið að seinni helmingi skólaársins (en fyrri helmingi almanaksársins…) – náðum við að rugla ykkur? 🙂 Eftirfarandi fastir viðburðir eru á dagskrá Foreldrafélags Ísaksskóla á næstu mánuðum: 1. Öskudagur miðvikudagurinn 14. febrúar. Foreldrafélagið kaupir skemmtiatriði fyrir börnin og stendur fyrir tunnuslag í íþróttasalnum eftir hádegi. 2. Páskabingó þriðj
Kæru vinir, Í fyrramálið er búist við vonskuveðri á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í efri byggðum og á Kjalarnesi. Við viljum koma eftirfarandi á framfæri samkvæmt tilkynningu 1 frá slökkviliðinu: Röskun getur orðið á skólastarfi á morgun, þriðjudaginn 9. janúar, vegna erfiðleika starfsfólks og nemenda við að komast til skóla – Við biðjum ykkur kæru foreldrar/forráðamenn að fylgja börnunum inn í
Kæru vinir, við sendum ykkur hugheilar jólakveðjur með óskum um farsæld og frið á komandi ári. Kærar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst aftur á nýju ári fimmtudaginn 4. janúar 2018. Starfsfólk Skóla Ísaks Jónssonar
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.