Dagur Íslenskrar tungu var í gær 16. nóvember og að venju var hann haldinn hátíðlegur hér í Ísaksskóla. Við fengum til okkar góðan gest. Það var hann Aðalsteinn Ásberg laga- og textahöfundur sem kom til okkar. Hann samdi meðal annars lögin: „Krúsílíus“ og „Vögguvísa handa pabba“ sem hafa verið á söngdagskránni hjá okkur. Að sjálfsögðu fluttum við þessi lög fyrir hann og hann launaði okkur greiðann
Kæru foreldrar/forráðamenn Skóladagatal Ísaksskóla 2017-2018 hefur vegna mistaka verið ofreiknað um einn dag. Þetta leiðréttist þannig að jólatrésskemmtun og þar með síðasti skóladagur fyrir jólafrí verður 20. desember í staðinn fyrir 21. desember. Nýju útgáfuna af skóladagatalinu má sækja hér og hefur einnig verið uppfærð hér á vefnum. Eins og í fyrra verður þó opið í Sólbrekku 21. og 22. desembe
Kæru foreldrar/forráðamenn. Nú er vetur konungur mættur í Ísaksskóla og því minni ég á mikilvægi þess að börnin séu með hlífðarfatnað sem hæfir veðráttunni. Stígvél/kuldaskór, ásamt góðum vettlingum og húfum er búnaður sem hvert barn ætti að mæta með daglega í skólann, ásamt aukafatnaði í töskum. Kær kveðja, Lára
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.