Kæru vinir, þegar líða tekur á nóvembermánuð fá nemendur afhenta miða á aðventudaga Árbæjarsafns. Aðventudagarnir eru að þessu sinni sunnudagarnir 3., 10. og 17. desember. Í ár hljóða vildarkjörin upp á 900 kr á foreldri, frítt fyrir yngri en 18 ára og eldri en 67 ára. Hver nemandi í Ísaksskóla fær 3 afsláttarmiða. Við sendum ykkur tölvupóst þegar miðarnir fara í töskuna hjá börnunum. – miðv
Skipulagsdagur verður föstudaginn 10. nóvember. Athugið að þann dag er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð eða Sólbrekku. Dagur íslenskrar tungu er fimmtudaginn 16. nóvember. Við höldum hátíðlega upp á daginn. Með hlýjum kveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Það er óhætt að segja það ríkir mikil gleði og kátína á skólalóðinni þessa dagana, enda mikið tilefni til. Á föstudaginn sl. var tekið í notkun nýtt leiktæki sem hefur fengið nafnið Köngulóin. Þess hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu, enda börnin fylgst með uppsetningunni alla vikunna og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar vinnugirðingin var höfð á brott og tækið opnað klifuróðum krökkum.
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.