Kæru foreldrar/forráðamenn. Ég vil minna ykkur á að fara varlega í umferðinni í kringum skólann, sérstaklega á morgnana. Það þarf að huga vel að litlum vegfarendum sem eru á leið í skólann sinn, bæði til okkar og í Háteigsskóla. Eins vil ég biðja ykkur að sýna nærgætni og leggja ekki bílunum þannig að umferð teppist á meðan þið farið með börnin inn í skólann. Nágrannar okkar eru mjög ósáttir ef la
Kæru foreldrar/forráðamenn, Sólbrekka verður opin í vetrarleyfinu fyrir þau 5 ára börn sem ekki verða í frí. Opið verður kl. 8:30 – 16:30 fimmtudaginn 19., föstudaginn 20. og mánudaginn 23. október. Þessa daga er ekki bein kennsla en notaleg samvera og leikur með okkar góða starfsfólki. Nauðsynlegt er að skrá börnin þessa daga til þess að tryggja rétta mönnun. Kennararnir munu setja upp list
Vinavika verður 2. – 6. október. Foreldradagur er þriðjudaginn 10. október. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennarar munu hafa samband við foreldra og bjóða viðtalstíma. Vetrarfrí er fimmtudaginn 19., föstudaginn 20. og mánudaginn 23. október. Athugið að á foreldradegi og í vetrarfríi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð. Sólbrekka verður opin fyrir 5 ár
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.