Kæru foreldrar/forráðamenn. Það eru vinsamleg tilmæli frá íbúum í Bólstaðarhlíð að foreldrar leggi ekki bílum sínum í götunni eftir klukkan 3 á morgun vegna götuhreinsunar. Bent er á bílastæði við kennaraháskólann, þar sem örstutt er að ganga eftir göngustígnum að Ísaksskóla. Vinsamlega virðið þessi tilmæli og leggið ekki í götunni. Kærar kveðjur Lára Jóhannesdóttir
Skráning á sýningu Leikhópsins Lottu „Ljóta andarungann“ á túninu við hliðina á rafstöðvarhúsinu í Elliðárdalnum í Reykjavík þann, þann 31. maí klukkan 18.00. Vinsamlega skráið nafn barns, bekk og fjölda hér: https://docs.google.com/forms/d/1xx2FZYm-rL4Yq6gLQHDDr_fEFZQmE0PDMAP_J8xTJ_k/edit Munið að koma með reiðufé – 1000 kr pr miða. Góða skemmtun Foreldrafélag Ísaksskóla
Kæru vinir, Barnakór Ísaksskóla og Barna- og unglingakór Hallgrímskirku halda sína árlegu vortónleika í Hallgrímskirkju næstkomandi fimmtudag 18. maí klukkan 17:30 Allir velkomnir! Aðgangur ókeypis. Hlakka til að sjá ykkur 🙂 Ása kórstjóri
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.