Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 25. apríl á sal skólans kl. 17:30. Allir foreldrar/forráðamenn og starfsmenn eru hvattir til að mæta. Dagskrá: 1. Ávarp formanns skólanefndar 2. Skýrsla skólanefndar 3. Ársreikningur fyrir síðasta starfsár 4. Kosning í skólanefnd skv. samþykktum skólans 5. Kosning endurskoðenda 6. Tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum félag
Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn, Þriðjudaginn 4. apríl höldum við bláa daginn hátíðlegan í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfunnar. Þá eru allir hvattir til að klæðast bláu og foreldrar um leið hvattir til að ræða við og fræða börn sín um einhverfu. Líkt og undanfarin ár er það BLÁR APRÍL – Styrktarfélag barna með einhverfu, sem stendur fyrir deginum. Markmið bláa dagsins er að fá
Páskabingó foreldrafélagsins verður þriðjudaginn 4. apríl og miðvikudaginn 5. apríl kl. 17:15. Nánari upplýsingar eru komnar á vefinn okkar. Páskafrí. Síðasti kennsludagur fyrir páska er föstudagurinn 7. apríl. Skólinn hefst aftur þriðjudaginn 18. apríl. Sólbrekka verður opin fyrir þau 5 ára börn sem ekki taka frí strax mánudaginn 10. apríl, þriðjudaginn 11. apríl og miðvikudaginn 12. apríl. Sumar
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.