Kæru foreldrar/forráðamenn Skóli Ísaks Jónssonar fer þess á leit við ykkur að þið aðstoðið barnið ykkar við að taka þátt í könnun á líðan nemenda í Ísaksskóla. Við biðjum ykkur að fara inn á vefslóð könnunarinnar, en hún var send rafrænt í tölvupósti til allra foreldra og forráðamanna skólans undir lok síðustu viku. Það tekur aðeins fáeinar mínútur að svara þessum spurningum. Tilgangur könnunarinn
Foreldradagur verður þriðjudaginn 14. febrúar. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennarar munu hafa samband við foreldra og bjóða viðtalstíma. Þennan dag er engin kennsla né starfsemi í skólanum. Vetrarfrí er mánudaginn 20. febrúar og þriðjudaginn 21. febrúar. Athugið að þessa tvo daga er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð. Sólbrekka er opin fyrir þau 5 ára börn
Kæru foreldrar/forráðamenn. Við verðum á þjóðlegum nótum á morgun, föstudag. Tilefnið er Þorrinn. Að lokinni söngstund munu bekkirnir koma einn í einu með sínum kennara fram á sal þar sem þeir fá að bragða á hefðbundnum þorramat; hrútspungum, sviðasultu, hákarli og harðfiski. Nemendur mega koma í lopapeysum í skólann. Kær kveðja. Starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.