Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn, Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar 2017 verður haldinn þriðjudaginn 25. apríl kl. 17:30 á sal skólans. Dagskrá: 1. Ávarp formanns skólanefndar 2. Skýrsla skólanefndar 3. Ársreikningur fyrir síðasta starfsár 4. Kosning í skólanefnd skv. samþykktum skólans 5. Kosning endurskoðenda 6. Tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum félagsins 7. Önnur mál Með góðum kv
Árlegt páskabingó foreldrafélags Ísaksskóla verður haldið dagana 4. og 5. apríl nk. kl. 17:15 og stendur til ca. 18:30. Þriðjudaginn 4. apríl spila: 5 ára IG, 5 ára MBD, 5 ára SG, 5 ára SÓL, 6 ára EÁK, 6 ára HGO og 6 ára VLA. Miðvikudaginn 5. apríl spila: 7 ára HK, 7 ára HÞ, 7 ára ÞEK, 8 ára BVK, 8 ára EBH, 9 ára JHH og 9 ára SÁS. Hvert bingóspjald kostar 500 kr. og það verður posi á staðnum en vi
Kæru foreldrar/forráðmenn. Við minnum á starfsdaginn okkar sem er á morgun og því engin skóli hjá börnunum. Framkvæmdagleðin mun vera við völd hér í skólanum þennan dag. Það er því mjög mikilvægt að þið takið með allan útlifatnað, töskur og skó þegar þið sækið börnin á morgun. Kærar kveðjur, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.