Kæru foreldrar/forráðamenn og nemendur. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir samstarfið og samveruna á því gamla. Framundan eru skemmtilegir skóladagar og við hlökkum til að hitta ykkur endurnærð eftir fríið á morgun, miðvikudaginn 4. janúar kl. 8:30. Sólbrekka opnar kl. 7:30 eins og venjulega. Föstudaginn 6. janúar syngjum við áramótasöngva í söngstund á sal. Þorragleði verður föstudaginn 20. janúar.
Kæru vinir, við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum samfylgd og samverustundir á liðnum árum. Skólinn hefst á nýju ári miðvikudaginn 4. janúar 2017 kl. 8:30 samkvæmt stundaskrá. Með nýárskveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Litlu jólin eru morgun, mánudaginn 19. desember í skólastofum. Þann dag er venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með smákökur og drykkjarföng í fernum (röradrykk) í aukanesti. Ekkert gos er leyfilegt. Jólatrésskemmtanir eru á þriðjudaginn 20. desember. Jólaböllin eru tvö. Hið fyrra frá kl. 13:00-14:30 (mæting kl. 12:45) og hið seinna frá kl. 15:00-16:30 (mæting kl. 14:45). Nemendur safnast
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.