Foreldrafélagið stendur fyrir jólaferðum á Árbæjarsafn þrjá sunnudaga á aðventu, 4., 11. eða 18. desember – Afsláttarmiði fór heim í skólatöskunum á mánudag. Kirkjuferð er miðvikudaginn 7. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því
Kæru foreldrar/forráðamenn Ég vil minna alla foreldra/forráðamenn á að skólareglan er sú að fara í raðir úti á skólalóð í upphafi dags en ekki inn í skólahús. Þetta á við alla nemendur sem eru ekki í gæslu í Sólbrekku fyrir kl. 8:30 á morgana. Ástæðan fyrir þessu er sú að við höfum ekki starfsfólk til þess að gæta barnanna og þar við situr. Það á eitt yfir alla að ganga og því treysti ég á ykkur a
Kæru Ísaksskólaforeldrar, Í dag var dreift tilboðsmiðum á jólahátíð Árbæjarsafns til Ísaksskólaforeldra. Dagarnir sem um ræðir árið 2016 eru aðventu sunnudagarnir 4., 11., og 18. desember frá kl 13 -17. Nánari upplýsingar um dagskrána má sjá á www.minjasafnreykjavikur.is Gott er að mæta tímanlega, því bílastæðin fyllast. Aðgangseyrir með tilboðsmiðanum er 820 kr. fyrir fullorðna, frítt fyrir yngri
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.