Heil og sæl kæru Ísaksskólaforeldrar, Venju samkvæmt fá foreldrar barna í Ísaksskóla þrjá tilboðsmiða á jólahátíð Árbæjarsafns. Dagarnir sem um ræðir árið 2016 eru aðventu sunnudagarnir 3., 10., og 17. desember frá kl 13 -17. Gott er að mæta tímanlega, því bílastæðin fyllast. Hér gefst gestum kostur á að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Jólasveinarnir verða á vappi,
Heimildarmynd um Ísaksskóla verður frumsýnd í dag. Hrefna Hallgrímsdóttir og Bragi Þór Hinriksson hafa unnið að gerð myndarinnar í tæp tvö ár og hefur þeim tekist að fanga brot af sögu skólans frá upphafi til dagsins í dag. Hrefna er gamall nemandi við skólann og börnin hennar hafa gengið í skólann og því mikill fengur fyrir skólann að hún hafi tekið að sér þetta mikilvæga verkefni. Hrefna og Brag
Skipulagsdagur verður föstudaginn 11. nóvember. Athugið að þann dag er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð eða Sólbrekku. Dagur íslenskrar tungu er miðvikudaginn 16. nóvember. Fyrsti sunnudagur í aðventu er 27. nóvember. Við kveikjum á fyrsta kerti aðventukransins föstudaginn 25. nóvember. Með haustkveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.