Kæru foreldrar og forráðamenn Nýtt skólaár er nú gengið í garð og með því viljum við senda ykkur hagnýt kennslumyndbönd til aðstoðar við aðgang ykkar að Mentor. Mentor er nýttur til að auka upplýsingaflæði til heimila. Þið getið skráð ykkur inn á vefinn með lykilorði og fáið þá aðgang að svæði þar sem hægt er að finna allar helstu upplýsingar um ykkar börn. Hægt er að sjá meðal annars stundaskrá,
Kæru foreldrar/forráðamenn 5 ára barna, Við minnum á foreldrafundinn kl. 17:30 á sal skólans í dag, fimmtudag. Ekki er ætlast til að börnin komi með á fundinn. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest, starfsfólk Ísaksskóla
Kæru foreldrar/forráðamenn Senn lýkur sumarleyfum nemenda. Starfsfólk Ísaksskóla hlakkar til að hitta þá aftur sem og nýja nemendur við skólann. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til samstarfs á nýju skólaári. Áður en skólinn hefst viljum við benda á nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við skólabyrjun. Mánudaginn 22. ágúst er fyrsti skóladagur hjá 6, 7, 8 og 9 ára nemendum. Skóladagur
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.