Kæru foreldrar/forráðamenn, ættingjar og vinir Minnum á 90 ára afmælishátíðina á morgun kl. 13-14. Dagskráin fer fram í hátíðarsal skólans og að henni lokinni er gestum boðið að ganga um skólann og sjá afrakstur vinnu nemenda og þiggja veitingar. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest, starfsfólk Ísaksskóla Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Kæru foreldrar/forráðamenn. Sækja þarf um námsvist í Skóla Ísaks Jónssonar fyrir skólaárið 2016 – 2017 fyrir þau börn sem ekki eiga lögheimili í Reykjavík. Þetta þarf að gera ár hvert svo að skólinn fái greitt námsframlag með barninu. Umsókn þarf að berast fyrir 20. apríl 2016. kær kveðja Lára
Kæru foreldrar/forráðamenn, ættingjar og vinir Í tilefni 90 ára afmælis skólans bjóðum við aðstandendum nemenda til veislu föstudaginn 15. apríl kl. 13-14. Dagskráin fer fram í hátíðarsal skólans og að henni lokinni verðum gestum boðið að ganga um skólann og sjá afrakstur vinnu nemenda og þiggja veitingar. Þennan morgun fellur hefðbundinn söngur á sal niður. Vinsamlega leggið ekki bílunum þannig a
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.