Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar 201 verður haldinn þriðjudaginn 12. apríl kl. 17:30. Dagskrá: 1. Ávarp formanns skólanefndar 2. Skýrsla skólanefndar 3. Ársreikningur fyrir síðasta starfsár 4. Kosning í skólanefnd skv. samþykktum skólans 5. Kosning endurskoðenda 6. Tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum félagsins 7. Önnur mál Með góðum kveðjum, Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Kæru foreldrar/forráðamenn. Við minnum á að gæslan lokar klukkan 16:15 á föstudögum. Biðjum við ykkur vinsamlega að virða opnunartímann svo ungmennin okkar komst úr vinnunni á réttum tíma.
Kæru foreldrar/forráðamenn Foreldrafélagið minnir á Páskabingóið sem haldið verður í næstu viku, 8 og 9. mars. 5 og 6 ára bekkur – þriðjudaginn 8.mars frá17:30 – 18:30 7, 8 og 9 ára bekkur – miðvikudaginn 9.mars17:30-19:15 Við höfum ákveðið að vera bara með veitingasölu seinna kvöldið en okkar vantar sjálfboðaliða (10-12 manns) fyrir það kvöld, ef þú hefur möguleika á að aðstoða
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.