Kæru foreldrar/forráðamenn Í dag héldu 5 ára nemendur skólans upp á að hafa verið 100 daga í skólanum. Þeir hafa beðið eftir 100 daga hátíðinni með óþreyju og í dag rann stóri dagurinn upp. Þeir þræddu m.a. Cherrios og Weetos í tugum upp í hundrað og fóru í Ásadans í salnum. Við leyfum myndunum sem fylgja með þessari frétt að tala sínu máli. Hér er slóðin á myndirnar. Til hamingju, 5 ára nemend
Foreldradagur verður miðvikudaginn 8. febrúar. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennararnir hafa samband við foreldra/forráðamenn og bjóða viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 20., þriðjudaginn 21. og miðvikudaginn 22. febrúar. Þeir eru hefðbundnir skóladag
Kæru vinir, Í dag lauk skemmtilega popplestrarátakinu okkar. Það hefur eflaust ekki farið fram hjá ykkur að börnin ykkar eru búin að lesa eins og vindurinn síðustu tvær vikur, bæði heimalestur og yndislestur. Við fögnuðum dugnaði nemenda með því að setja upp poppvélar og bjóða upp á popp og almenna gleði. Hægt er að skoða myndasafn tileinkað popplestrinum hér á vefnum okkar með því að smella hér Á
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.