Kæru foreldrar/forráðamenn Fjölmörg samtök kvenna, hinsegin fólks og launafólks hafa boðað til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október 2023, þar sem konur og kvár sem það geta eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf þennan dag. Skólastarf í Ísaksskóla fellur því niður þar sem við munum ekki geta tryggt öryggi nemenda þennan dag vegna mannfæðar. Þar sem um er að ræða mikilvæga jafnré
Foreldradagur verður þriðjudaginn 10. október. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennararnir munu hafa samband og bjóða viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Skipulagsdagur verður miðvikudaginn 11. október. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag. Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árvekni- og
Kæru vinir, Föstudaginn 9. september tóku öll börn Ísaksskóla þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ (áður Norræna skólahlaupið). 6-9 ára bekkirnir hlupu tvo hringi í kringum KHÍ og Háteigsskóla og síðan tvo hringi í kringum Ísaksskóla. Fimm ára börnin hlupu svo fjóra hringi í kringum Ísaksskóla. Allt starfsfólk skólans tók þátt í hlaupinu, staðsetti sig við gatnamót, hvatti börnin áfram og jafnvel hlupu með. H
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.