Kæru foreldrar/forráðamenn. Við ætlum að gera okkur dagamun að loknum þemadögum á morgun, föstudag. Nemendur mega koma með tröllanesti í skólann; djús eða safa í brúsanum sínum og kexkökur til að maula á eftir ávaxtabita. Með tröllakveðjum, starfsfólk Ísaksskóla.
Kæru foreldrar/forráðamenn. Við verðum á þjóðlegum nótum á morgun, föstudag. Tilefnið er Þorrinn. Að lokinni söngstund munu bekkirnir koma einn í einu með sínum kennara fram á sal þar sem þeir fá að bragða á hefðbundnum þorramat; hrútspungum, sviðasultu, hákarli og harðfiski. Nemendur mega koma í lopapeysum í skólann. Kær kveðja. Starfsfólk Ísaksskóla
Starfsfólk Ísaksskóla er á leið í námsferð í mars og er því að selja veglega og fallega spilastokka með merki skólans á. Með spilunum fylgir bæklingur þar sem kenndir eru skemmtilegir spila-stærðfræðileikir fyrir fjölskylduna. Spil eru skemmtileg leið til að auka talnaskilning og stærðfræðiþekkingu. Helena Símonardóttir, kennari í Laugarnesskóla, hefur sett mörg skemmtileg stærðfræðispil á youtub
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.