Kæru foreldrar/forráðamenn Við þurfum tvo fulltrúa foreldra í skólaráð skólans og leitum til áhugasamra foreldra/forráðamanna. Við fundum ca. 6 sinnum á skólaárinu og fundirnir standa yfir í um klukkustund. Endilega sendið mér póst ef þið hafið áhuga. Í reglugerð um skólaráð í grunnskóla segir m.a.: Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveit
Kæru foreldrar/forráðamenn Minnum á foreldrakynningu 6-9 ára á morgun, miðvikudag, kl. 17:30 á sal skólans. Ekki er ætlast til að börnin komi með. Að henni lokinni er haldið inni í skólastofur barnanna með umsjónarkennurum. Okkar bestu kveðjur, starfsfólk Ísaksskóla
Kæru foreldrar/forráðamenn Við minnum á námskynningar 5 ára á morgun, fimmtudaginn 27. ágúst, kl. 17:30. Við byrjum á sal og síðan fara foreldrar/forráðamenn inn í skólastofur með kennurum barnanna þar sem farið verður yfir faglegar áherslur og námsefni kynnt. Ekki er ætlast til að börnin komi með. Með bestu kveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.