Orðsending frá stjórn Foreldrafélags Ísaksskóla varðandi gjöf til skólans og breytingar á fyrirkomulagi páskabingósins á næsta ári. Kæru foreldrar og forráðamenn. Ákveðið hefur verið í nánu samráði við Sigríði skólas
Kæru foreldrar/forráðamenn Síðasti kennsludagur er föstudagurinn 5. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur. Skólaárinu lýkur með skólaslitum kl 13:30 og þá er foreldrum/forráðamönnum velkomið að koma og hlýða á tröppusöng. Að honum loknum fylgja börnin kennara sínum inn í skólastofu og kveðja þar. Engin gæsla er að loknum skólaslitum. Sumarskólinn hefst miðvikudaginn 10. júní. Með sól í sinni
Kæru foreldrar/forráðamenn Á morgun, miðvikudaginn 3. júní, ætlum við að gera okkur dagamun. Nemendur mega koma með sparinesti og röradrykk að heiman í litlum bakpoka eða tösku. Ekki má koma með sælgæti eða gosdrykki. Allir þurfa að vera klæddir eftir veðri. Með bestu kveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.