Kæru foreldrar/forráðamenn Vegna veðurs er mikilvægt að þið sækið börnin ykkar í skólann. Við verðum öll inni ásamt börnunum þangað til þau hafa verið sótt. Vinsamlegast fylgist með fréttum af veðri. Sjá: http://shs.is/images/files/roskun_a_sko
Kæru foreldrar/forráðamenn, Við minnum á kirkjuferðina á morgun, miðvikudaginn 3. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga a&e
Foreldrafélagið stendur fyrir jólaferðum á Árbæjarsafn þrjá sunnudaga í desember, 7., 14. eða 21. desember – nemendur fá afsláttarmiða heim í skólatöskunni í dag. Kirkjuferð er miðvikudaginn 3. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.