Komið þið sæl og blessuð. Kór Ísaksskóla, yngri og eldri deild (7, 8 og 9 ára) syngur í fjölskylduguðsþjónustu í Háteigskirkju á næstkomandi sunnudag (23. nóv) klukkan 11:00 Prestur er Helga Soffía Konráðsdóttir. Að þessu sinni b&yac
Kæru foreldrar/forráðamenn Við viljum benda á að greiðsluseðill fyrir félagsgjald foreldrafélagsins fyrir veturinn 2014-2015 er nú kominn í heimabankann ykkar, undir valgreiðslur, en eitt gjald er fyrir hverja fjölskydu óháð fjölda barna. Það er mikilvægt fyrir starfið a&et
Aðalfundur Foreldrafélags Ísaksskóla verður haldinn fimmtudaginn 6. nóvember 2014, kl. 19:00 á aðalsal Ísaksskóla. Kl. 19:00-19:20 – Aðalfundarstörf Kl. 19:20-20:00 – Fyrirlestur – Vanda Sigurgeirsdóttir flytur áhugaverðan fyrirlestur um vináttu Vonumst til að sjá sem f
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.