Foreldradagur verður þriðjudaginn 10. október. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennararnir munu hafa samband og bjóða viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Skipulagsdagur verður miðvikudaginn 11. október. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag. Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árvekni- og
Kæru vinir, Föstudaginn 9. september tóku öll börn Ísaksskóla þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ (áður Norræna skólahlaupið). 6-9 ára bekkirnir hlupu tvo hringi í kringum KHÍ og Háteigsskóla og síðan tvo hringi í kringum Ísaksskóla. Fimm ára börnin hlupu svo fjóra hringi í kringum Ísaksskóla. Allt starfsfólk skólans tók þátt í hlaupinu, staðsetti sig við gatnamót, hvatti börnin áfram og jafnvel hlupu með. H
Skólasundið hjá 6-9 ára hefst þriðjudaginn 5. september og verður í Sundhöll Reykjavíkur eins og áður. Ólympíuhlaup ÍSÍ verður haldið föstudaginn 8. september. Söngur á sal verður í fyrst sinn föstudaginn 8. september. 5 ára börnin bætast í hópinn seinna. Bekkjamyndir verða teknar 18.-20. september. Farið verður í fjallgöngu með stuttum fyrirvara þegar og ef sú gula lætur sjá sig. Verkefnið útivin
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.