Aðalfundur foreldrafélags Ísaksskóla verður haldinn í dag þriðjudag, kl. 17:30 í aðalsal Ísaksskóla. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: • Lögð fram skýrsla stjórnar • Ársreikningar • Kosning í stjórn foreldrafélagsins • Annað Vonumst til að sjá sem flesta, Stjórn foreldrafélagsins
Velkomin í Ísaksskóla er bæklingur ætlaður foreldrum/forráðamönnum. Hann hefur að geyma ýmsar hagnýtar upplýsingar um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina. Bæklinginn má finna undir samnefndum lið hér vinstramegin á síðunni. Með skólakveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Kæru vinir, dagskrá septembermánaðar í skólanum okkar er sem hér segir: Kynningar 6-9 ára þriðjudaginn 3. september kl. 17:30. Sund verður einu sinni í viku hjá 6-9 ára bekkjum frá 27. ágúst og fram í mars. Þriggja vikna frí verður frá sundinu í október. Samræmd próf verða í íslensku fimmtudaginn 26. september og í stærðfræði föstudaginn 27. september hjá 9 ára. Vinavika verður 30. september ̵
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.