Foreldrar og forráðamenn barna við Skóla Ísaks Jónssonar tóku þátt í viðhorfskönnun á vegum Reykjavíkurborgar. Markmiðið var að skoða viðhorf foreldra til grunnskóla. Einnig líðan og stuðning við barnið. Auk þessa var nám, kennsla og stjórnun skólans metin. Úrtakið var valið af handahófi úr öllum skólum borgarinnar og fjórum sjálfstætt starfandi skólum. Hægt er að skoða niðurstöðurnar með því að s
Kæru foreldrar/forráðamenn Á morgun er síðasti söngur á sal þetta skólaárið og allir foreldrar/forráðamenn velkomnir að hlýða á sönginn. Endilega leggið í lögleg stæði og gangið aðeins lengri leið ef ekki finnast stæði við skólann. Síðasti kennsludagur er miðvikudagurinn 8. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur til kl. 13:30/14:00. Skólaárinu lýkur með skólaslitum. Foreldrar/forráðamenn og f
Síðasti kennsludagur er miðvikudagurinn 8. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur til kl. 13:30/14:00. Skólaárinu lýkur með skólaslitum. Foreldrar/forráðamenn og fjölskyldur eru velkomnar í skólann að hlýða á tröppusöng. Skólaslit/tröppusöngur: Kl. 13:30 Tröppusöngur 5 ára Kl. 14:00 Tröppusöngur 6-9 ára Engin frístund er að skólaslitum loknum. Sumarskólinn hjá 5 og 6 ára hefst mánudaginn 13.
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.