Kæru foreldrar/forráðamenn. Lífið lék svo sannarlega við okkur í dag þegar leikjadagurinn okkar var haldinn á Klambratúni. Lítil andlit ljómuðu og nýjar freknur mynduðust á mörgum sólkysstum andlitum. Foreldrafélagið sá svo um að næra nemendur okkar með pylsum og góðgæti í hádeginu og vakti það mikla lukku. Þökkum foreldrafélaginu hjartanlega fyrir framlag sitt í dag, það er ómetanlegt að hafa svo
Kæru foreldrar/forráðamenn, Á föstudaginn 20. maí ætlum við að halda hvítan dag og biðjum við öll börn að klæðast einhverjum hvítum fötum að ofan. Hvítt fyrir börn sem biðja um frið verður sungið á sal um morguninn, en laglínan kemur úr lagi Olgu Guðrúnar Árnadóttur, Myndin hennar Lísu. Friðarkveðjur, starfsfólk Ísaksskóla
Skipulagsdagur verður föstudaginn 13. maí. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag. Leikjadagur verður föstudaginn 21. maí. Farið verður á Miklatún og farið í leiki sem Matti krull, Baldur og Kristinn íþróttakennarar skipuleggja. Við færum daginn til ef veðrið verður eitthvað að stríða okkur. Uppstigningadagur er fimmtudaginn 26. maí og er almennur frídagur. Annar í hvítasunnu er má
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.