Kæru foreldrar forráðamenn. Um leið og við óskum ykkur gleðilegra páska, þá viljum við láta ykkur vita að litla fallega fólkið ykkar fékk páskaegg frá foreldrafélaginu að gjöf í dag. Það voru glöð börn sem fengu hamborgara og franskar í hádeginu og lítið páskaegg í eftirrétt. „Besti dagur lífs míns“ heyrðist úr einni stofunni, það lýsir stemningunni og gleðinni sem fylgdi þessum glaðning. Vi
Skipulagsdagar verða fimmtudaginn 7. og föstudaginn 8. apríl. Athugið að þessa daga er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð eða Sólbrekku. Páskafrí. Síðasti kennsludagur fyrir páska er miðvikudagurinn 6. apríl. Opið verður í Sólbrekku mánudaginn 11., þriðjudaginn 12. og miðvikudaginn 13. apríl fyrir þau 5 ára börn sem ekki byrja í páskafríi strax. Fyrsti skóladagur eftir páska er þriðjudagu
Kæru vinir, Barnakór Ísaksskóla býður ykkur velkomin á vortónleika kórsins á fimmtudaginn kl. 17:30 á sal skólans. (sjá auglýsingu með því að smella á fréttina) Hlökkum til að syngja fyrir ykkur. Kær kveðja, Björg tónmenntakennari og kórstjóri
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.