Komiði sæl kæru foreldrar, Nú þegar dag er tekið að lengja má gleðjast yfir því og þeim tíðindum að samkomutakmörkunum hafi loks verið aflétt. Það var yndislegt að hlýða aftur á Söng á sal í morgun og vonandi fer nú lífið að færast í venjulegt far, enda þótt ófriðlegra sé í heiminum en um langt skeið. Við vildum láta ykkur vita að foreldrafélagið tekur þátt í Öskudeginum ásamt skólanum í næstu vik
Bólusetningardagur barna 6-9 ára er þriðjudagurinn 1. febrúar. Þann dag lýkur skóladegi allra nemenda í 1.-4. bekk Ísaksskóla kl. 11:00. Þetta á við um alla nemendur hvort sem þeir fara í bólusetningu eða ekki. Foreldrar/forráðamenn sækja börnin sín út á skólalóð klukkan 11:00. Frístundin opnar síðan kl. 14:10 og verður opin til kl. 16:30. Mikilvægt er að fylgjast vel með þeim börnum sem fara í bó
Á þriðjudaginn kemur, þann 1. febrúar lýkur skóladegi allra nemenda í 1.-4. bekk Ísaksskóla kl. 11:00. Þetta á við um alla nemendur hvort sem þeir fara í bólusetningu eða ekki. Foreldrar/forráðamenn sækja börnin sín út á skólalóð klukkan 11:00. Frístundin opnar síðan kl. 14:10 og verður opin til kl. 16:30. Mikilvægt er að fylgjast vel með þeim börnum sem fara í bólusetninguna. Þau gætu fengið auka
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.