Kæru foreldrar/forráðamenn. Í tilefni sólar og sumarstemningar höfum við ákveðið að reima á okkur gönguskóna og fara með alla nemendur skólans í skemmtilega fjallgöngu á morgun miðvikudaginn 7. september. Ferðinni er heitið á Úlfarsfellið fagra. Mikilvægt er að vera mætt tímanlega í skólann, búin að pissa og gera allt sem lítið fólk þarf að gera áður en lagt er af stað í gönguna. Brottför verður k
Kæru foreldrar/forráðamenn Skólaárið fer ljúflega af stað og smám saman erum við öll að lenda og ró að færast yfir skólann hans Ísaks. Okkur langar til að minna alla á að aðalinngangurinn er lokaður til kl. 8:30 á morgnana en opið við 5 ára innganginn fyrir þá sem koma í morgunfrístundina frá kl. 7:30. Við munum ekki halda sérstakan foreldrafund 6-9 ára eftir skóla eins og við gerðum fyrir Covid,
Kæru foreldrar/forráðamenn, Nú styttist í að skólaárið hefjist og vonandi eru allir að njóta síðustu frídaganna. Starfsfólk Ísaksskóla hlakkar til að hitta alla nemendur aftur sem og nýja nemendur við skólann. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til samstarfs og samvinnu á nýju skólaári. Áður en skólinn hefst viljum við benda á nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við skólabyrjun. Mánuda
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.