Verkefnið útivinir verður í gangi vetur. Útivinir er verkefni þar sem nokkrir 9 ára nemendur standa fyrir útileikjum á skólalóðinni í frímínútum fyrir yngri nemendur undir handleiðslu kennara. Foreldradagur er þriðjudaginn 5. október. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennararnir hafa þegar haft samband við foreldra/forráðamenn og boðið viðtalstíma. Athugið að á foreldrad
Kæru vinir, Í dag tókum öll börn Ísaksskóla þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ (áður Norræna skólahlaupið). 6-9 ára bekkirnir hlupu tvo hringi í kringum KHÍ og Háteigsskóla og síðan tvo hringi í kringum Ísaksskóla. Fimm ára börnin hlupu svo fjóra hringi í kringum Ísaksskóla. Allt starfsfólk skólans tók þátt í hlaupinu, staðsetti sig við gatnamót, hvatti börnin áfram og jafnvel hlupu með. Hlaupið endaði síða
Kæru foreldrar/forráðamenn Til þess að koma í veg fyrir umferðarhnútinn sem myndast hjá skólanum á morgnana er mikilvægt að við notum rampinn sem er fyrir framan aðaldyr skólans aðeins til að hleypa börnunum okkar út. Þar á hvorki að leggja né stoppa til að bíða með börnunum í bílnum. Ég bið ykkur vinsamlega að leggja í stæði á öðrum stöðum og ganga með börnunum ykkar stuttan spöl ef þið viljið fy
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.