Skipulagsdagur verður mánudaginn 10. maí. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag. Uppstigningadagur er fimmtudaginn 13. maí og er almennur frídagur. Leikjadagur verður föstudaginn 21. maí. Farið verður á Miklatún og farið í leiki sem Matti krull og Jói íþróttakennarar skipuleggja. Annar í hvítasunnu er mánudaginn 24. maí og er almennur frídagur. Síðasti kennsludagur er fimmtudaguri
Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn, Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar var haldinn í dag, þriðjudaginn 27. apríl. Skólanefnd næsta starfsárið er óbreytt þar sem Páll Harðarson fulltrúi foreldra og Jónas Þór Guðmundsson varamaður hans sitja áfram. Herdís Þórsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna var endurkjörin til tveggja ára og Lára Jóhannsdóttir varamaður hennar og Jóhann Örn Þórarinsson fulltrúi
Foreldrafélag Ísaksskóla gladdi börnin í dag með dásamlegum og síðbúnum páskaglaðningi. Þar sem skólum landsins var lokað síðustu daga fyrir páskafrí gafst ekki tækifæri á að gefa glaðninginn þegar til stóð á síðasta skóladegi fyrir páska. Það ríkti mikill spenningur og gleði í skólastofunum þegar Matti okkar mjúki birtist færandi hendi með lítil páskaegg í öllum regnbogans litum. Heldur betur óvæ
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.