Kæru foreldrar og forráðamenn, Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur sent frá sér eftirfarandi upplýsingar vegna skólahalds í landinu. – Yfirlýst neyðarstig almannavarna hefur bein og óbein áhrif á skólastarf í landinu. Skólastjórnendur og kennarar hafa sýnt mikla yfirvegun við þessar óvenjulegu aðstæður og horft til fyrirmæla í nýsamþykktri landsáætlun sóttvarnarlæknis og ríkislögreglust
Kæru foreldrar/forráðamenn Enn og aftur þarf ég að minna ykkur á hætturnar sem skapast við skólann vegna umferðarinnar þessa dagana. Við viljum biðja ykkur um að leggja bílunum í viðurkennd stæði á morgnana, aldrei uppi á gangstéttum eða eyjum. Lögreglan sektar óhikað eins og einhverjir hafa þegar lent í. Stæði eru í Bólstaðarhlíðinni, Skaftahlíðinni, Stakkahlíðinni og á bílastæðunum við Menntavís
// english follows Kæru foreldrar og forráðamenn, Hér fylgja 5 góð ráð varðandi hvernig má ræða um kórónavírusinn við börn. Leiðbeiningarnar eru lauslega þýddar af vef danska ríkisútvarpsins, DR.dk, og fylgir tengill á fréttina neðst í póstinum. 1 – Hlustaðu á barnið Fyrst og fremst skulum við setjast niður og spyrja barnið hvort það vilji tala um kórónaveiruna og komast að því hvað barni
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.