Elskulegu foreldrar/forráðamenn. Nú eru tröppurnar í salnum fullar af óskilamunum. Endilega komið við og athugið hvort ekki leynist eitthvað kunnuglegt í tröppunum. Þar eru einnig óskilamunir frá 5 ára krúttum.
Dagur stærðfræðinnar er 7. febrúar. Foreldradagur verður miðvikudaginn 12. febrúar. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennarar munu hafa samband við foreldra/forráðamenn og bjóða viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 24., þriðjudaginn 25. og miðvikudaginn 26.
Kæru foreldrar/forráðamenn. Við verðum á þjóðlegum nótum á morgun, föstudag. Tilefnið er Þorrinn. Að lokinni söngstund munu bekkirnir koma einn í einu með sínum kennara fram á sal þar sem þeir fá að bragða á hefðbundnum þorramat; hrútspungum, sviðasultu, hákarli og harðfiski. Nemendur mega koma í lopapeysum í skólann. Kær kveðja. Starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.