Kæru vinir, við sendum ykkur hugheilar jólakveðjur með óskum um farsæld og frið á komandi ári. Kærar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst aftur á nýju ári mánudaginn 6. janúar 2020. Starfsfólk Skóla Ísaks Jónssonar
Kæru foreldrar/foráðamenn. Á morgun verða jólaskemmtanir í Ísakssksóla og viljum við því biðja ykkur að taka allan hlífðarfatnað/töskur með heim í dag þegar þið sækir börnin. Einnig væri gott að líta í óskilamunakörfurnar og athuga hvort eitthvað leynist þar. Með hátíðarkveðju.
Litlu jólin eru á morgun, fimmtudaginn 19. desember, í skólastofum. Þetta er venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með smákökur og drykkjarföng í fernum (röradrykk) í aukanesti. Ekkert gos er leyfilegt. Jólatrésskemmtanir eru svo á föstudaginn, þann 20. desember. Jólaböllin eru tvö. Hið fyrra frá kl. 13:00-14:30 (mæting kl. 12:45) og hið seinna frá kl. 15:00-16:30 (mæting kl. 14:45). Nemen
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.