Kæru vinir, Föstudagssöngstund í Ísaksskóla er alveg dásamleg samverustund og hefur löngum átt sérstakan sess í hug og hjörtum allra sem koma að skólanum, hvort sem það eru nemendur, aðstandendur, starfsfólk eða aðrir vinir og vandamenn skólans. Söngstundin föstudaginn 3. maí síðastliðinn var þar engin undantekning. Meðan sólin skein sínu bjartasta inn um gluggann brostu börnin sínu breiðasta og f
Verkalýðsdagurinn er miðvikudaginn 1. maí og er almennur frídagur. Skipulagsdagur verður mánudaginn 20. maí. Athugið að þennan dag er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð eða Sólbrekku. Uppstigningadagur er fimmtudaginn 30. maí og er almennur frídagur. Leikjadagur verður föstudaginn 24. maí. Farið verður á Miklatún og farið í leiki sem Matti krull, Jói og Valdís íþróttakennarar skipuleggja.
Páskabingó foreldrafélagsins verður þriðjudaginn 9. apríl og miðvikudaginn 10. apríl. Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl kl. 17:30 á sal skólans. Allir foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að mæta. Páskafrí. Síðasti kennsludagur fyrir páska er föstudagurinn 12. apríl. Fyrsti skóladagur eftir páska er þriðjudagurinn 23. apríl og hefst venju samkvæmt kl. 8:30. Opi
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.