Leiksýningin Ævintýrið um Augastein heimsótti skólann okkar í dag, miðvikudaginn 14. desember. Verkið byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið, en í ævintýri leikhópsins er það drengurinn Augasteinn sem allt snýst um. Hann lendir fyrir tilviljun í höndum jólasveinanna hrekkjóttu, sem vilja ólmir taka hann að sér, en þegar Grý
Kæru foreldrar/forráðamenn. Að gefnu tilefni vil ég minna ykkur á að börnin ykkar séu með viðeigandi hlífðarfatnað í skólanum fyrir útiveruna. Alltof margir voru blautir og kaldir eftir frímínúturnar í dag. Kærar kveðjur Lára
Kæru Ísaksskólavinir, Leiksýningin „Ævintýrið um Augastein“ mun heimsækja Ísaksskóla nk. miðvikudag kl 12:50 í boði Foreldrafélags Ísaksskóla. Njótið vel! Foreldrafélag Ísaksskóla Um leiksýninguna má lesa á midi.is: https://midi.is/leikhus/1/9791/Avintyrid_um_Augastein
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.