Ágætu foreldrar/forráðamenn nemenda í Ísaksskóla. Myndatökur á vegum Skólamynda verða fimmtudaginn 8. október og föstudaginn 9. október. Við myndum einstaklingsmyndir og hópmyndir af nemendum. Myndirnar fara síðan inná vef Skólamynda og með aðgangslykli skólans getur fólk skoðað, valið og pantað myndir. Hverjum og einum er síðan frjálst að kaupa eftir hans / hennar hentugleik. Við sendum tölvupós
Kæru foreldrar/forráðamenn og nemendur. Við minnum á að á morgun, föstudaginn 2. október, verður frí í Ísaksskóla vegna skipulagsdags starfsfólks. Við hittumst hress og kát aftur á mánudaginn, þann 5. október. Góða helgi, starfsfólk Ísaksskóla
Kæru foreldrar/forráðamenn Verkefnið útivinir verður í gangi 28. september – 22. október Útivinir er verkefni þar sem nokkrir 8 og 9 ára nemendur standa fyrir útileikjum á skólalóðinni í frímínútum fyrir yngri nemendur undir handleiðslu kennara. Sundið er komi
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.