Kæru foreldrar/forráðamenn. Á morgun (fimmtudag) og á föstudag þreyta nemendur 9 ára bekkjar samræmd próf. Vinsamlega gangið hljóðlega um og notið eingöngu neðri ganginn til kl. 12:00 báða dagana. Vegna prófanna verður ekki söngur á sal á föstudagsmorgun. Einnig fellur sundið niður á morgun, fimmtudag, hjá 9 ára, 7 ára BVK og 7 ára EBH. Báða dagana verða 8 ára bekkirnir og 7 ára SÁS í ferðum úr hú
Kæru foreldrar/forráðamenn Við þurfum tvo fulltrúa foreldra í skólaráð skólans og leitum til áhugasamra foreldra/forráðamanna. Við fundum ca. 6 sinnum á skólaárinu og fundirnir standa yfir í um klukkustund. Endilega sendið mér póst ef þið hafið áhuga. Í reglugerð um skólaráð í grunnskóla segir m.a.: Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveit
Kæru foreldrar/forráðamenn Minnum á foreldrakynningu 6-9 ára á morgun, miðvikudag, kl. 17:30 á sal skólans. Ekki er ætlast til að börnin komi með. Að henni lokinni er haldið inni í skólastofur barnanna með umsjónarkennurum. Okkar bestu kveðjur, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.