Kæru foreldrar/forráðamenn Á morgun, miðvikudaginn 3. júní, ætlum við að gera okkur dagamun. Nemendur mega koma með sparinesti og röradrykk að heiman í litlum bakpoka eða tösku. Ekki má koma með sælgæti eða gosdrykki. Allir þurfa að vera klæddir eftir veðri. Með bestu kveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Kæru foreldrar/forráðamenn, Á föstudaginn næstkomandi eru leikjadagar 6 – 9 ára nemenda okkar. Við skellum okkur á Klambratúnið og förum í skipulagða leiki. Við ætlum hvorki að láta veður né vind stoppa okkur og biðjum ykkur að klæða börnin eftir veðri &t
Kæru foreldrar/forráðamenn og börn. Við ætlum að fresta Vorhátíð foreldrafélagsins og sleppa Græna deginum þetta árið. Spáin er köld og mikil forföll barna vegna íþróttamóta og annarra viðburða út um allan bæ. Í staðinn mun foreldrafélagið halda Vorhátíð á skólatíma á föstudaginn kemur þann 15. maí. Þennan dag verður leikjadagur í skólanum og að honum loknum tekur hátíðin við með pylsupartýi, andl
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.